Folk Tale
Sagan af kerlingunni fjórdrepnu
Author | Jón Árnason |
---|---|
Book Title | Íslenzkar þjóðsögur go æfintýri |
Publication Date | 1852 |
Language | Icelandic |
Origin | Iceland |
Einu sinni voru hjón sem áttu þrjá syni. Hét einn þeirra
Loftur, annar Björn, en um nafn hins þriðja er ekki getið.
Þegar þessi saga gerðist var faðir þeirra bræðra dáinn en
Loftur hafði kvænst og tekið við öllum búsforráðum, því
bræður hans voru lausamenn en viðloða hjá honum og græddu fé.
Móðir þeirra var og komin í hornið til Lofts.
Ekki var
húsfreyju Lofts grunlaust um að tengdamóðir sín mundi ófrægja
sig og spilla fyrir sér við mann sinn enda sat Loftur löngum
á eintali við móður sína, framan á rúminu hjá henni. Einn dag
þegar þeir bræður voru rónir til fiskjar, því þeir voru
sjómenn og aflamenn miklir, hugðist konan að reyna trúskap
tengdamóður sinnar og segir henni að maður sé kominn sem hafi
flesk að selja en sig langi til að kaupa dálítið af því.
Kerling segir að hún skuli gera það. Hún viti hvort sem sé að
hann Loftur beri hana ekki ofurráða um neitt. Konan segist
vita það með vísu en maðurinn heimti það fyrir fleskið sem
hún megi ekki veita honum þar sem hún sé gift kona.
"Ó, vertu ekki að því arna, heillin mín," segir kerling,
"annað eins brallaði ég í gamla daga og varð ekki óglatt af."
Konan lést þá fara að hennar dæmum og kaupir fleskið en fyrir
allt annað en það sem hún hafði á orði við kerlingu.
Nú líður og bíður þangað til bræður koma að og heim um
kvöldið og fór Loftur á tal við móður sína og situr framan á
hjá henni. Húsfreyja fann það að kerlingu var annt um að fá
tóm til að tala við Loft, fór hún því ofan en kom jafnan fyrr
aftur en kerling kæmi því upp er niðri fyrir var. Kerlingu
féll þetta illa og lét son sinn skilja á sér dylgjur með því
að raula þetta fyrir munni sér:
Eitt orð býr í barka mér
og annað fyrir neðan,
þriðja býr í lungum mér
og það dregur sleðann.
Og enn þetta:
Ef sumir vissu um suma
það sem sumir gera við suma
þegar sumir eru frá,
þá væru ekki sumir við suma
eins og sumir eru við suma
þegar sumir eru hjá.
En meira gat kerling ekki komist í leik með að segja syni
sínum um kvöldið. Morguninn eftir róa þeir bræður eins og
þeir voru vanir. Um daginn kemur húsfreyja að máli við
kerlingu og segir að sig langi ósköp til að leika sér.
Kerling segir: "Gerðu það, góðin mín. En hvaða leikur er það
sem þig langar mest í?"
Húsfreyja segir að það sé að róla sér.
Kerling segir að við þann leik hafi hún best skemmt sér
á fyrri dögum og skuli hún gera það sér til ánægju fyrst hún
hafi gaman af því.
Húsfreyja spyr hana hvort hún mundi nú
ekki treysta sér til að komast ofan með sinni hjálp og sjá
hvernig hún fari að róla sér fyrst henni hafi þótt svo mikið
gaman í þessum leik til forna.
Kerling heldur það og staulast ofan og fram í skála sem var
í bænum, með tilstyrk tengdadóttur sinnar.
Nú fer húsfreyja að róla sér um stund og
þykir kerlingu hið mesta gaman að horfa á. Síðan fer konan úr
rólunni og spyr nú tengdamóður sína hvort hún mundi ekki hafa
gaman af að setjast í róluna en hún skuli bæði styðja hana að
rólunni og róla henni.
Kerlingin aftekur það ekki að
sér kynni að þykja gaman að því. Fer hún svo með tilhjálp
tengdadóttur sinnar upp í róluna og styður hún við hana um
stund. En þegar minnst vonum varir hrindir húsfreyja rólunni
af stað og sleppir kerlingu svo hún kastast langt til úr
rólunni og lendir með höfuðið á stórum steini við
skálaþröskuldinn og hálsbrotnar þar.
Húsfreyja tekur hana
þaðan steindauða, ber hana inn í rúm og breiðir kirfilega
ofan á hana og lætur svo allt vera kyrrt þangað til þeir
bræður koma heim um kvöldið. Þá spyr Loftur hvað að móður
sinni sé, hún hafi ekki tekið undir við sig þegar hann
heilsaði henni. Húsfreyja segir að hún muni þá hafa sofnað
því henni hafi orðið flökurt í dag. Síðan ber ekki neitt á
neinu.
Morguninn eftir róa þeir bræður en húsfreyja tekur lík
tengdamóður sinnar, skautar því og hressir upp á kerlingu
eins og hún var vön, fer með hana út í skemmu sem Loftur átti
og lýkur þar upp stórri kistu sem hann geymdi í tóbak og
brennivín. Þar lætur hún kerlingu krjúpa fyrir framan
kistuna, hafa höfuðið undir kistulokinu og halda með annarri
hendi á tóbaksruttu, sem hún rakti upp, en á hníf í annarri
hendinni eins og hún ætli að skera af tóbakinu og stela því.
Hún lætur svo skemmuna standa í hálfa gátt þegar Loftur kemur
heim um kvöldið í hálfrökkrinu.
Honum verður heldur felmt við
að koma að skemmunni opinni því hann hafði sjálfur mesta
umgöngu um hana. Hann fer þó inn og verður ekki betra við
þegar hann sér að maurakistan er opin og kvenmaður krýpur við
hana og er að stela tóbaki. Hann ræður sér því ekki fyrir
bræði, grípur stóra sveðju sem hann átti í skemmunni og rekur
þennan vogest í gegn.
Kerling dettur út af við lagið og
þekkir hann þar móður sína. Lofti varð ósköp illt við
eins og nærri má geta, að hann hafi orðið banamaður móður
sinnar en ræður það samt af að segja konu sinni óhapp sitt.
Húsfreyja lét illa yfir verkinu en sagðist þó mundu leitast
við að dylja það og kemur líkinu, svo hinir bræðurnir vissu
ekki af, inn í rúm kerlingar.
Daginn eftir, meðan þeir bræður eru á sjó, tekur húsfreyja
kerlinguna og fer með hana ofan í stóran hjall sem Björn átti
einn fyrir sig og geymdi í bæði skreið og hákarl. Þar hressir
húsfreyja upp á kerlingu og skautar henni og lætur hana
standa á hnjánum og halda með annarri hendinni um
hákarlslykkjur en á hníf í hinni.
Um kvöldið þegar þeir
bræður komu að og eru búnir að gera að hjá sér fer Björn með
eitthvað inn í hjall. Sér hann þá hvar kona með skaut er að
stela hákarli úr hjallinum. Hann grípur þar sleddu stóra og
rekur hana í gegn en þekkir að þetta er móðir sín í því hún
rýkur út af.
Honum varð fjarska illt við að hafa drepið móður
sína, finnur þó mágkonu sína og biður hana í öllum bænum að
leyna með sér þessu ódæði sem sig hafi hent. Húsfreyja lætur
illa yfir þessu en segist þó muni dylja það sem sér sé auðið.
Daginn eftir róa þeir bræður enn á sjó en húsfreyja tekur lík
kerlingar og fer með það til næsta bæjar. Svo stóð á að þar
bjó sýslumaður. Mikil vinátta hafði verið með þeim sýslumanni
og foreldrum þeirra bræðra og eins leit út fyrir að mundi
verða með sýslumanni og Lofti bónda.
Sýslumaður átti hrút sem
honum þótti undur vænt um og lét tjóðra hann þar sem best var
í túninu og vitjaði hans oft á dag að gamni sínu. Nú bar svo
vel í veiði að húsfreyja Lofts kemur líki kerlingar þangað
sem hrúturinn er tjóðraður án þess nokkur yrði þess var,
skautar kerlingu þar og hreyfir upp á henni. Síðan tekur hún
hrútinn og drepur hann og lætur kerlingu grúfa yfir honum
eins og hún sé að gera hann til, fer síðan sjálf burtu svo að
enginn sér til ferða hennar.
Þegar sýslumaður kemur á fætur
um morguninn verður honum það fyrst fyrir að vitja um hrússa
sinn. Sér hann þá hvar kerling situr og sýnist honum hún vera
að gera hrússa til. Hann reiðist þessum tiltektum kerlingar,
dregur sverð sem hann bar við hlið, sem þá var siður, og
rekur kerlinguna í gegn. En þegar kerling valt út af þekkir
hann að þar er vinkona hans gamla.
Honum féll þetta
frámunalega illa að sig skyldi hafa hent sú hrösun að reiðast
svo að hann hefði orðið mannsbani fyrir jafnlitla sök og það
þessarar konu. Hann sendi því eftir tengdadóttur hennar, því
þeir bræður voru á sjó, sagði henni upp alla sögu og bað hana
í öllum bænum að hafa einhver ráð að koma kerlingunni í
jörðina svo að sér yrði ekki kennt um kvenvíg og bauð henni
stórmikið fé til þess.
Konan hét þessu og fór heim með
kerlingu svo ekki varð vart við og fékk mikla peninga hjá
sýslumanni fyrir að losa hann úr þessum vandræðum. Eftir það
var kerling grafin og gerð útför hennar vegleg en þau Loftur
og kona hans komust eftir þetta í mestu kærleika við
sýslumann og unnust sjálf hugástum.
(J.Þork. -- Handrit Jóns Árnasonar eftir Margréti Jónsdóttur frá Undirfelli.)
Netútgáfan - júní 1997
Text view