Text view
Grýla og bændur hennar
Author | Jón Árnason |
---|---|
Book Title | Íslenzkar þjóðsögur go æfintýri |
Publication Date | 1852 |
Language | Icelandic |
Origin | Iceland |
Grýla hét norn ein gömul; hún var tvígift. Fyrri maður hennar hét Boli. Þau buggu undir Arinhellu. Áttu þau mörg börn saman sem segir víða í Grýlukvæðum. Þau voru bæði mannætur hinar mestu, en þókti þó hnossgæti mest að borða allt ungviði sem skáldið kvað:
Grýla og Boli bæði hjón börn er sagt þau finni þau er hafa svæsinn són til sorgar mömmu sinni.
Og:
Boli, boli bangar á dyr, ber hann fram með stöngum; bíta vill hann börnin þau sem belja fram í göngum.
Ætíð þókti meira koma til Grýlu en Bola. Andaðist hann fjörgamall úr ellilasleika eftir það hann hafði lengi legið í kör.
Eftir dauða Bola giftist hún aftur og eignaðist gamlan mann er hét Leppalúði. Þau áttu saman tuttugu börn, en ekki fleiri, því hún stóð á fimmtugu þegar hún átti tvíburana Sighvat og Surtlu sem bæði dóu í vöggu.
Grýla lifði báða bændur sína og varð að amla fyrir þeim lengi karlægum, enda er sagt henni væri óleitt að betla.