Folk Tale

Sögur af hallgrími péturssyni

AuthorJón Árnason
Book TitleÍslenzkar þjóðsögur go æfintýri
Publication Date1852
LanguageIcelandic
OriginIceland

Hallgrímur kveður til stúlku

Séra Hallgrímur Pétursson var kraftaskáld. Einu sinni var hann á ferð upp í Borgarfirði og kom þar að einum stórbæ og var þar um nótt. Hann var hvurki fríður né ríkmannlega til fara. Yngisstúlka þar á bænum fór að færa spott að honum um kvöldið. Hann sat á rúmi móts við hana. Þá kvað hann:

Horfi ég nú á hendina á þér og hana fyrir mér virði. Enginn er sú sem af henni ber í öllum Borgarfirði.

En eignast muntu argan þræl sem ekki er skóþvengs virði. Hvorki muntu heil né sæl hér í Borgarfirði.

Hann sá að reiðisvipur kom á stúlkuna. Þá bætti hann við:

Vékstu fyrri vondu að mér, víf, en góðu eigi. Enginn maður unni þér upp frá þessum degi.

Hún hafði síðan enga eirð né ró í Borgarfirði. Var henni ráðlagt að fara þaðan og það gjörði hún, en aldrei varð hún vinsæl upp frá því og maðurinn hennar varð böðull og voru í þá daga hafðir til þess ómerkilegir menn.

Síra Hallgrímur andast

Síra Hallgrímur Pétursson hefir verið talinn hið andríkasta skáld hér á landi af allri alþýðu manna og er enn talinn, og sýnir eftirfylgjandi saga hvað menn hafa haldið hann guði kæran fyrir sálma sína og guðsótta:

Þegar síra Hallgrímur andaðist sáu menn hvar tveir hvítir fuglar liðu í loft upp af húsi því er hann lá í, með skál á milli sín. Í henni var ofurlítið ljós bjart og logandi. Liðu þeir til himna einmitt á sömu stundu og presturinn andaðist.

Enn um andlát síra Hallgríms

Síra Hallgrímur kvað seinni sálminn er hann kvað á banasænginni - hefir mér verið sagt - rétt áður en hann andaðist. Dró af honum áður en sálminum var lokið. Tók þá sá við er sálminn skrifaði og yfir honum vakti og kvað seinasta versið.


Text view