Folk Tale

Sagan af sigurði hring og snata

AuthorJón Árnason
Book TitleÍslenzkar þjóðsögur go æfintýri
Publication Date1852
LanguageIcelandic
OriginIceland

Einu sinni var kóngur og drottning og réðu fyrir ríki. Þau áttu tvö börn. Hét sonur þeirra Sigurður, en Ingibjörg dóttir. Bæði voru þau afbragð annarra kóngabarna í þar nærliggjandi löndum. Þó er þess getið, að Sigurður væri mjög ágjarn. Hann var fullorðinn og bæði þau, er þessi saga gerðist.

Oft reið Sigurður á skóg með sveinum sínum að veiða dýr og fugla. Einu sinni kom yfir þá þokumyrkur, svo að þeir villtust hver frá öðrum. Varð Sigurður einn sér, og fór hann lengi villtur, þar til hann kom í skógarrjóður eitt nærri sjó. Situr þar í rjóðrinu kona fyrirtaks fríð. Hún sat á gullstól og greiddi hár sitt með gullkambi. Hann heilsar henni kurteislega, en hún tók vel kveðju hans. Sigurður spyr, hver hún sé. Hún segir: "Ég er ekkja konungs eins, er ég missti fyrir skömmu."

Þar var hjá henni kista ein furðumikil og stóð opin. Sigurður spyr, hvað í henni sé. Hún segir hann megi horfa ofan í hana, ef vilji, og gerir Sigurður það. Sér hann þá ekkert fémætt í kistunni nema á botninum hring einn afar stóran. Sigurði lék ágirnd á hringnum og falar hann af konunni. Hún segir hann megi eiga hann, ef hann nái honum. En Sigurði fannst lítið til þess að vinna og fer nú að teygja sig ofan í kistuna. Virðist honum hún miklu dýpri en honum sýndist áður, og er hann nú nær því allur kominn á höfuðið. Veit hann þá ekki fyrr til en konan, sem á stólnum sat, kemur að og stingur honum alveg ofan í kistuna og læsir aftur. Síðan veltir hún kistunni ofan í flæðarmál og hrindir frá landi. Veit nú Sigurður ekki, hvað lengi hann er í kistunni eða hvert hún fer, þar til loksins að honum finnst hún standa kyrr. Þykist hann nú vita, að hún muni einhvers staðar að landi komin.

Leitast hann nú við að ná botninum úr kistunni, og það getur hann um síðir. Fer hann nú að litast um og þykist sjá, að hann er kominn að meginlandi, en hvert það var, vissi hann ekki. Nú gengur hann upp á land og nokkuð lengi, þar til hann sér hjá sér fara kvikindi nokkurt ekki ólíkt hundi að skapnaði, en þó ljótara. Hverfur það honum þá. Litlu síðar sér hann risa ógurlegan og ber fundum þeirra saman. Segir þá jötunninn: "Hvort er sem mér sýnist, að Sigurður hringur kóngsson sé hér?"

Hinn kvað það satt vera - "og er þér nær að veita mér lið en að gera gys að mér."

Risinn segir: "Að vísu skal ég þér lið veita, og skalt þú koma heim með mér."

Fara þeir nú, unz þeir komu þangað, sem jötunninn átti heima. Ekki varð hann var við fleiri menn en risann og kerlingu hans. Er hann hjá þeim um nóttina í góðum fagnaði.

Um morguninn segir risinn við kóngsson, að hann megi vera hjá þeim til vors, ef hann vilji. Kóngsson segist það gjarnan þiggja vilja. Risinn segir: "Hvort vilt þú heldur fara með mér daglega á dýraveiðar eða vera heima hjá kerlingu minni?" Sigurður segir fýsilegt að fara með honum. Eftir það fara þeir af stað. En um daginn var Sigurður svo seinn, að risinn varð annaðhvort að bíða eftir honum eða bera hann. Leið svo dagur að kveldi. Þá segir risinn við Sigurð: "Það sé ég, að okkur er ekki hent að ganga saman, og verður þú að gera þér að góðu að vera heima hjá kerlingu minni. Mátt þú biðja hvers, er þig lystir. Skal ég vinna þér eið ah því að gera hverja bón þína, sem mér er mögulegt. En þú verður aftur á móti að gera einn hlut, sem ég bið þig."

Sigurður segir: "Hvað er það?"

Risinn segir: "Það er að forvitnast aldrei í eldaskála minn."

"Já, það skal ég gera," segir Sigurður, "því að á því ríður mér ekkert."

Að svo mæltu unnu þeir hvor öðrum eið að þessu og fara síðan heim. Var Sigurður nú daglega heima hjá kerlingu, en jötunninn á dýraveiðum. Það undraði Sigurð, að hann varð þess aldrei var, að risakonan færi neitt á flakk, og þó voru þeim bornir beztu réttir daglega og hvað annað í beztu reglu, sem gera skyldi. En aldrei sá hann neina skepnu lifandi nema risann og kerlingu hans. Oft datt honum í hug að líta inn í eldaskálann og hugsaði, að ekki þyrfti neinn að verða þess var. Einn dag ræður hann af, að hann skuli koma inn í eldhús, en þegar hann kom í dyrnar, sér hann eitthvert kvikindi við eldinn, ekki ólíkt því, er hann sá á skóginum og fyrr er nefnt. Það stekkur upp og hleypur á móti honum. Rauk þá úr því aska mikil. Sigurður varð hræddur mjög. En það kom fram í eldhúsdyrnar og kallaði eftir Sigurði og sagði: "Kjóstu mig." Varð svo ekki meira milli þeirra í það sinn. Þetta varð þrjá daga, að Sigurður ætlaði í eldaskálann, og fór allt á sömu leið og fyrr er sagt. Líður svo veturinn.

Um vorið segir risinn við kóngsson: "Nú mun að því líða, að þú farir héðan, og ætla ég að flytja þig burt af þessu landi. Þú skalt nú kjósa þér einhvern hlut úr eigu minni."

Nú minntist Sigurður þess með sjálfum sér, er kvikindið hafði sagt: "Kjóstu mig" - og segir við risann: "Ég kýs mér skepnu þá, sem í eldaskála þínum er."

Risinn segir: "Nú hefur þú ekki efnt loforð þitt, en þó skalt þú ekki taka gjöld fyrir það. En enginn er sá hlutur í eigu minni, er ég vildi síður láta en dýr þetta, því að það má heita sem önnur hönd kerlingar minnar með allt, er vinna þarf. En bæði er það, að ég hef lofazt til að gera allt, sem ég get fyrir þig, og líka hitt, að við þurfum skamma stund á að halda, því að við erum bæði feig, og mátt þú þá eiga það, sem fémætt er í híbýlum okkar." Skildu þeir svo talið.

Einn dag um sumarið bjuggust þeir kóngsson og risinn til burtferðar. Kallaði þá risinn áður á skepnu þá, er í eldaskálanum var, og sá þá Sigurður, eins og honum hafði fyrr sýnzt, að þetta var hundur. Fara þeir svo til strandar. Stóð þar fyrir steinnökkvi karls, og stigu þeir á hann. Þá varð eftir rakkinn, og kallaði jötunninn til hans. Stökk hann þá út á nökkvann, og héldu þeir svo frá landi. Segir ekki af ferð þeirra, fyrr en þeir komu að landi. Sneri risinn þá til baka, og kvaddi Sigurður hann áður og þakkaði honum fyrir allar velgjörðir við sig. Nú veit Sigurður ekki, hvert halda skal, og ganga þeir svo nokkra stund rakkinn og hann. Þá segir rakkinn: "Því talarðu ekkert við mig?"

Sigurður segir: "Ég get ekki nefnt þig, því að ég veit ekki, hvað þú heitir?"

"Nefndu mig Snata," segir rakkinn.

"Hvert skulum við þá fara?" segir kóngsson.

Snati segir: "Ég skal ráða ferðum okkar, og ætla ég að fara til konungs eins, sem ræður fyrir hér nokkuð frá. Hann á dóttur eina, er Ingibjörg heitir, og er hún afbragðs kvenmaður. Þangað förum við og biðjum konung veturvistar, og mun hann okkur það veita. Rauður heitir ráðgjafi kóngs. Hann er bæði illgjarn og undirförull, og skalt þú vara þig á honum."

Eftir það felldu þeir niður talið. Segir ekki af ferðum þeirra, fyrr en þeir komu til kóngs. Gerðu þeir nú boð kóngi, að þeir bæðu hann veturvistar. Kóngur lét leiða Sigurð til sætis, og tóku þeir tal með sér, Sigurður og kóngur, en rakkinn Snati lá jafnan við fætur Sigurði. Kóngur segir: "Þú beiðist veturvistar með mér, og geri ég þér það falt. En einn kost set ég þér, eins og öllum, sem eru hjá mér veturvistarmenn: Hér voru meðal fjársjóða ríkisins fimm dýrgripir, sem langfeðgar mínir höfðu átt hver fram af öðrum. Þeir voru sverð, skjöldur, burtstöng, skikkja og brynja. Þeim fylgdi sú náttúra, að meðan þeir voru við lýði, var ríkið frítt við allan ófrið og styrjöld. Nú bar svo til fyrir nokkrum árum, að gripir þessir hurfu, og veit enginn, hvað af er orðið. Set ég það á við hvern veturvistarmann, er ég tek, að finna og færa mér þessa gripi, og ef einhver gæti það, gifti ég honum dóttur mína. En ef þeir geta það ekki, læt ég drepa þá. Af þessu sérð þú, hvað fyrir þér liggur sem öðrum, en sjálfráður ert þú að fara í burt að óreyndu."

Sigurður kvaðst mundu til hætta að vera, hversu sem færi. Fékk kóngur honum nú virðulegt sæti og herbergi til íbúðar. Var Sigurður hjá kóngi í góðu yfirlæti, en ætíð virtist honum Rauður ráðgjafi hafa illan augastað á sér.

Um veturinn litlu fyrir jól segir Snati eitt sinn við Sigurð: "Gakktu nú fyrir kóng og fáðu orðlof hjá honum til að fara frá hirðinni um jólin."

Sigurður segist það skyldu gera. Fer hann á kóngs fund og segist ætla að biðja hann að lofa sér að finna kunningja sína um jólin. Kóngur kvað hann mega fara sinna ferða, hvert er hann vildi, og þakkaði Sigurður honum mikillega slíka góðvild.

Nú finnur Sigurður Snata og segir honum leyfi kóngs. Snati lét vel yfir því. Á Þorláksmessu segir Snati við Sigurð: "Farðu nú og útvegaðu þér nokkuð talsvert af salti."

Sigurður spyr, hvað það skyldi.

"Þú veizt það síðar," segir Snati.

Nú fer Sigurður og fær sér stóran poka fullan af salti. Finnur hann þá Snata og segir: "Nú er ég búinn að fá nóg salt, en það gagnar okkur lítið, því að ég get hvergi hrært hann."

Snati segir: "Við skulum koma þangað, sem pokinn er." - Og er þeir koma þar, segir Snati: "Nú skalt þú binda pokann á bakið á mér," - og gerði Sigurður það.

Eftir það gekk Snati af stað og segir, að Sigurður skuli koma eftir sér. Segir ekki um, hvað eða hversu langt þeir fóru, nema þeir komu á aðfangadagskveld að hömrum nokkrum og sáu þar helli í. Snati segir þeir skuli koma upp á björgin. Og er þeir komu þar, sjá þeir glugga á berginu. Lætur nú Snati Sigurð taka af sér pokann, fara nú að horfa inn um gluggann og sjá þeir þar undir eld brennandi og pott ógurlega stóran yfir hlóðum. En fjögur flögð sváfu við eldinn og hrutu hátt. Nú tóku þeir saltpokann og sáðu öllu úr honum inn um gluggann og ofan í pottinn. Eftir nokkra stund vaknaði eitt flagðið og fór að smakka á grautnum og segir: "Móðir mín, grauturinn þinn er saltur."

"Nei, það getur ekki verið," segir kerling. Svo fara hin að smakka á og segja hið sama við kerlingu, að grauturinn sé saltur. Loksins rís hún sjálf upp og fer að sleikja og segir: "Það er satt, grauturinn er saltur. Hann er þó annars dágóður, sem vonlegt er, því að mjólkin í hann var sótt í tólf kóngaríki."

Heldur nú skessan áfram að sleikja, þar til hana tók heldur að þyrsta, og segir þá: "Elsku dóttir mín, sæktu mér nú að drekka."

Hún segir: "Það geri ég ekki, nema ég fái skikkjuna góðu."

"Það verður víst ekki af því," segir kerling, "að ég fari að ljá þér slíkan grip, sem hún er."

"Jæja, drepstu þá, bölvuð dyrgjan," segir sú yngri. Samt fór svo, að kerling lét undan, gekk í burt og kom aftur með skikkjuna og fékk dóttur sinni, en hún fór í hana, tók síðan kvartilsskjólur og gekk til brunns. Var hún þá sjálf þyrst og lagðist niður að brunninum, en þeir Sigurður og Snati koma í því og drápu hana í brunninum, tóku af henni skikkjuna og fóru svo aftur upp á gluggann.

Nú heyra þeir, að kerling segir: "Ekki kemur dóttir mín, og fer það sem mig varði, að hún mun ekki hirða um að koma aftur, þegar hún var búin að hafa út hjá mér skikkjuna góðu. Heillasonurinn minn, sæktu mér að drekka."

Hann svarar: "Ekki nema ég fái brynjuna góðu."

"Brynjuna góðu," segir kerling, "það verður ekki samt, því ef þú færð hana, ferð þú að leika þér með systur þinni og kemur aldrei aftur."

"Drepstu þá," segir strákur, "einu gildir mig." Sá þá kerling, að ekki var til góðs að gera, fór því og sótti brynjuna og fékk honum, en hann klæddi sig í hana, tók hálftunnuskjólur og gekk til brunns. Var þá fyrir honum sem systur hans, að hann þurfti sjálfur að fá sér að drekka. En í því komu þeir Sigurður og Snati og drápu hann, tóku brynjuna og fóru svo upp á gluggann aftur.

Þá segir kerling: "Bölvuð hjúin, þau koma aldrei aftur, eins og mig grunaði, og þarf ég ekki að vænta þeirra fyrst um sinn." En alltaf var hún að éta úr pottinum, þar til hún segir: "Heilla-Sámur bóndi minn, sæktu mér nú að drekka, því að ég ætla að drepast úr þorsta."

Hann segir: "Ef ég fæ sverðið góða."

"Nei, það læt ég þig aldrei hafa, því að þú svíkur mig eins og krakkarnir og kemur aldrei aftur," segir kerling, "eru mér slíkir dýrgripir ekki svo útfalir, að ég kasti þeim svo út fyrir ekki neitt."

Risinn segir: "Drepstu þá, bölvuð dyrgjan, og mátt þú vel fara."

Kerling segir: "Ég sé, að mér er annaðhvort að gera að láta undan þér." Að svo mæltu fer hún burt og kemur með sverð og fær honum. Sýndist þeim lýsa um húsið, er það var borið upp. Gyrðir Sámur sig með því, tekur tunnuskjólur og fer til brunns. Var það sem fyrr, að hann þurfti sjálfur að fá sér að drekka. En í því komu þeir að, Sigurður og Snati, og drápu hann og tóku sverðið og fóru heim á leið. En þegar þeir voru komnir á miðja leið heim að hellinum, þá kom Sámur afturgenginn á eftir þeim og var heldur gustmikill. Snati réðst á móti honum og gat með aðstoð Sigurðar haft hann undir og gekk svo frá honum, að hann stóð ekki upp framar.

Svo fara þeir heim að hellinum og Snati segir: "Nú er ráð að fara inn og finna kerlingu." Gengu þeir inn og Snati á undan. Þegar þeir koma í eldhúsdyrnar, stóð kerling upp og kom á móti þeim. Var hún heldur ófrýnileg og segir við Snata: "Ekki skal mig furða, þó að börnin mín og maður hafi ekki komið aftur frá brunninum, fyrst þú ert á ferð."

Snati segir: "Nú er ég kominn að launa þér fyrir forna leikinn, fjandans kindin." Réðst nú skessan á Snata, en hann tók grimmilega móti. Var þeirra aðgangur harður, en svo lauk, að þeir gátu komið henni niður. Varnaði Snati henni á fætur, en Sigurður jós yfir hana eldinum úr hlóðunum og grautinum úr pottinum, þar til hún loksins fór að linast, og um síðir gátu þeir drepið hana og brenndu til kaldra kola.

Áttu þeir nú fögrum sigri að hrósa yfir flögðum þessum. Fara þeir nú að leita í hellinum eftir gripum þeim, er vantaði, skildinum og burtstönginni. Loksins komu þeir í afhelli einn. Sáu þeir, að gripirnir voru þar upp í ræfrinu, og var hátt upp að þeim. Sigurður segir: "Hvert ráð höfum við til að ná gripunum?"

Snati segir: "Við skulum hlaða þrep á gólfið, svo fer ég upp á það og þú á bak mér og muntu þá geta prikað þeim ofan."

Þeir gerðu þetta, og er skjöldurinn datt ofan, söng í honum svo hátt, að heyrði í sex kóngsríki. Ekki er getið um, að þeir hafi tekið fleira fémætt í hellinum en gripina.

Eftir það fara þeir heim til borgar, og finnur Sigurður kóng, fagnar hann hans endurkomu. Líður nú veturinn. Geymdi Sigurður gripina vandlega og lét engan vita neitt um þá eða ferðalag sitt um jólin.

Á sumardaginn fyrsta gengur Sigurður fyrir kóng og þakkar honum veturvistina með mörgum fögrum orðum. Kóngur kvað hana lítils verða, - "en hvað hefur þú hugsað um að leita gripa þeirra, er ég ásetti við þig í haust?"

Sigurður kvaðst lítið hafa um það hugsað, - gengur þá í burt og sækir gripina og fer með þá til kóngs og fær honum þá og segir: Ekki veit ég, hvort þetta eru yðar horfnu gripir eða ei."

Kóngur varð glaður við, er hann sá gripina, og sagði: "Mikil gæfa var það ríki voru, er þú komst hingað, og eru þetta þeir sömu gripir, er ég meinta með öllu horfna. Ert þú nú vel kominn að ráðahag við dóttur mína, og vona ég þú ílengist hér framvegis." Er nú haft miklu meira við Sigurð en áður.

Eitt kvöld um vorið, er Sigurður var kominn í herbergi sitt og ætlaði að leggjast til svefns í sæng sína, þá segir Snati við hann: "Lof mér að vera í rúmi þínu, en ligg þú á gólfinu."

Sigurði þótti þetta undarlegt, en lét þó til leiðast. Um miðnætti vaknar hann við þrusk nokkurt og veit ekki, hvað veldur. Bregður hann þá upp ljósi og fer að skyggnast um húsið. Sér hann þá vegsummerki, að á þilið fyrir ofan rúmið er komið gat og í rúminu liggur framhandleggur af manni höggvinn sundur um olnboga og spjót í hendinni. Sigurður sá nú, að þetta mundi hafa verið ætlað sér og að Snati hafði forðað honum við líftjóni. Tekur hann nú handlegginn og spjótið úr rúminu og leggst til svefns og sefur til morguns. Daginn eftir kemur það á loft, að Sigurður hafi höggvið af Rauð ráðgjafa hönd í olnbogabót, og liggur hann í sárum. Sigurður fer til kóngs og segir honum, hvers hann hafi orðið var. Er nú Rauður tekinn fyrir. Meðgekk hann þá, að hann hefði einsett sér að ráða Sigurð af dögum, eftir það hann vissi, að kóngur ætlaði að gifta honum dóttur sína, því að hann kvaðst hafa ætlað sér að fá hana sjálfur og því tekið það til bragðs að gera gat á þilið hjá rekkju Sigurðar til að geta þar í gegn myrt hann í sænginni, þótt sér hefði ekki lukkazt það betur en nú væri fram komið. Eftir það er Rauður tekinn og hengdur á hæsta gálga, og fékk hann þannig umbun sinna illra verka.

Eftir þetta fer kóngur að búast við brúðkaupi þeirra Ingibjargar og Sigurðar. Er mörgu stórmenni til boðið. Kemur svo fyrsti dagur veizlunnar, og fór allt vel fram. Um kvöldið eru þau Sigurður og Ingibjörg leidd til rekkju. En áður var Snati búinn að biðja Sigurð að lofa sér að liggja til fóta þeirra Ingibjargar fyrstu nóttina, er þau væru saman.

Nú kom Snati þar, er þau hvíldu um nóttina, og leyfði Sigurður honum upp í rúmið, þegar Ingibjörg var sofnuð, en að litlum tíma liðnum verður Sigurður var við ókyrrleika, þar er Snati lá. Fer hann nú að gæta að þessu. Sér hann þá, að hundshamur liggur á gólfinu, en fríður og fallegur kóngsson í rúminu. Hann brennir haminn, en dreypir á kóngssoninn og þegar hann raknar við, spyr Sigurður hann að heiti. Hann svarar: "Ég heiti Hringur, og er ég kóngsson, en tröllkonan, sem við drápum í hellinum, er við sóttum gripina, lagði það á mig, að ég skyldi verða að hundi og aldrei úr þeim álögum komast, fyrr en ég fengi að sofa á fótum Sigurðar hrings kóngssonar og Ingibjargar kóngsdóttur. En svo það skyldi aldrei verða, þá ginnti hún þig, er þú fannst hana í rjóðrinu, og setti þig í kistuna og hugði hún, að það skyldi þinn bani verða." Skildu þeir svo talið að sinni. Er Hringur nú þar við hirðina, og segir Sigurður frá, hvað á dagana hafði drifið fyrir honum.

Einn dag segir Hringur við Sigurð: "Nú er svo komið, að mig fýsir að vitja ríkis míns, en ekki er það svo greitt til aðgöngu. Er faðir minn fyrir löngu dauður, en í ríkið hafa setzt tveir bræður. Þeir eru hinir verstu berserkir og bíta þá engin járn. Fylgir þeim hið versta illþýði, og hafa þeir kúgað landsfólkið til hlýðni. Nú ætla ég að fá þitt fulltingi til að stökkva óaldarflokki þessum."

Sigurður kvað það maklegt fyrir sakir vinskapar þeirra. Er nú búinn skipaher mikill, og fóru þeir þar með sem foringjar, Sigurður og Hringur. Segir ekki af ferð þeirra, fyrr en eitt kvöld, að þeir leggja flotanum að eylandi einu, og leggst fólk til náða, en Sigurður gat ekki sofnað og fer á fætur hljóðlega. Gengur hann á land einn sinna manna og er nú að hugsa um ferð þeirra. Verður fyrir honum lækur, og sezt hann niður í grasið hjá læknum. En er hann hefur þar litla stund verið, kemur meybarn og tekur vatn í skjólu skammt fyrir neðan þar, er Sigurður sat. Hann tekur gullhring af hendi sér og lætur renna í skjóluna hjá barninu. En honum sýndist það verða mjög glatt við og hljóp með skyndi heim. En að lítilli stundu liðinni kemur dvergur til Sigurðar, heilsar honum og segir: "Vanmáttugur er ég að launa þér fyrir barn mitt, en skyldur er ég að veita þér lið, ef ég gæti."

Sigurður segir: "Þörf er okkur nú á góðum ráðum, ef við eigum að geta komið fram áformi okkar."

Dvergurinn segir: "Það legg ég fyrst til með ykkur, að þið látið allt lið ykkar og skip heim fara, nema hafið eitt eftir, því að trautt vinnið þið berserkina með liðsfjölda. Þessu eina skipi skuluð þið sigla að landi því, er berserkirnir ráða yfir, og leggja því í leynivog. Er hér svart tjald, og skuluð þið tjalda með því yfir skipið, og sér það þá enginn. Hér er og sverð og tygilhnífur, og gef ég þér sverðið, en Hring hnífinn. Vona ég hvorttveggja bíti á berserkina. Nú er þið eruð að landi komnir, skalt þú og Hringur á land ganga. Eru hér glófar, sem þið getið haft á höndum, og sjáizt þið þá ekki. Þið skuluð ganga heim til borgar á þeim tíma, er þið væntið, að berserkirnir og hirðin sé undir borðum, og gangið óskelfdir djarflega inn í höllina. Munu berserkirnir auðþekktir frá öðrum. Verður þá sinn að vega að hvorum berserknum og það óslælega, svo að þeim ríði að fullu. En við því vara ég ykkur að fara sem skjótast út úr höllinni aftur. Væntir mig, ef þið getið fylgt þessum ráðum mínum, að duga muni." Lauk svo dvergurinn máli sínu, en Sigurður þakkaði honum með fögrum orðum og gaf honum eignir þær, er risinn hafði átt, sem Sigurður var fyrr hjá. Kvöddust þeir með miklum virktum, og bað hvor vel fyrir öðrum. Fer Sigurður til skipa, og varð enginn var við hans ferð.

Um morguninn kemur hann að máli við Hring og segir honum frá því, er gerzt hafði um nóttina, en hann lætur vel yfir. Láta þeir nú allt liðið fara heim nema eitt skip og fáa menn.

Segir nú ei af ferð þeirra, fyrr en þeir koma að landi Hrings, og lögðu inn á einn leynivog og tjalda yfir skipinu með tjaldinu frá dverginum. Draga þeir Sigurður og Hringur glófana dvergsnauta á hendur sér og fara svo til lands. Hafði Sigurður sverðið, en Hringur tygilhnífinn. Þegar þeir nálgast borgina, sjá þeir, að margt er af mönnum á gangi, og biðu því í leyni, þar til þeim virtist flestir inn komnir. Fara þeir þá heim til hallar og ganga inn. Sjá þeir, að menn sitja undir borðum. Voru berserkirnir í hásæti, og þóttu þeim þeir ærið tröllslegir, en höllin utar frá alskipuð af illþýði því, er þeim fylgdi, en landsfólkið, er fyrir var, hafði flest burt flúið. Nú ganga þeir að þeim bræðrum djarflega og lögðu vopnunum gegnum þá og hnigu þeir dauðir úr hásætinu, en Sigurður og Hringur höfðu sig fram eftir höllinni og út það allra skjótasta. Heyrðu þeir þá ókyrrleika mikinn á eftir sér, og fór það í vöxt. Skalf jörðin undir fótum þeim, svo að þeir urðu að leggjast niður. Hélzt þetta nokkra stund, þar til allt varð hljótt og kyrrt. Standa þeir þá á fætur og ganga inn í höllina. Sjá þeir þá, að þar eru allir dauðir eða því nær, og hafði það þannig að borið: Þegar þeir bræður hnigu úr hásætinu, sá enginn vegendurna, kenndi hver öðrum um að hafa drepið þá, og eyðilagði hvað annað, og var það ókyrrleiki sá, er þeir heyrðu, Hringur og Sigurður. Þetta hafði dvergurinn fyrir séð, og því varaði hann Sigurð við að dvelja í höllinni, eftir að berserkirnir væru dauðir, því að þá hefðu þeir orðið fyrir handagangi þeirra, er inni voru.

Eftir þetta sækja þeir fólk sitt, er á skipinu var, og fara heim til borgar. Stefnir nú Hringur að sér landslýðnum, og urðu allir honum fegnir. Lætur nú Hringur hreinsa höllina, og eftir það er slegið upp fagnaðarveizlu og mörgum til boðið. Er nú Hringur til konungs tekinn með samþykki allrar alþýðu. Lýsir hann því yfir, að hann ætli með Sigurði heim í hans ríki og setti menn til að gæta landsins, þar til hann kæmi aftur. Búa þeir nú ferð sína, Sigurður og Hringur, og fengu óskabyr, þar til þeir komu að höfnum við borg þá, er mágur Sigurðar réð fyrir. Er nú bryggjum kastað og ganga þeir Sigurður og Hringur og lið þeirra heim til borgar, og urðu allir þeim fegnir, þó einkum kóngur og drottning og Ingibjörg. Eru þeir þar um hríð í góðum fagnaði.

Einn dag segir Sigurður við kóng, að sig fýsi að vitja föðurleifðar sinnar og það því heldur, sem hann sjálfsagt sé haldinn dauður. Kóngur segir: "Góð þykir mér þín hérvist, en þó má ég ei synja þér þessa."

Eftir það er búizt við brottferð Sigurðar. Leysti kóngur út mund dóttur sinnar í gulli og gersemum. Kvaddi hvað annað með miklum virktum að skilnaði, og hélt svo Sigurður og Hringur og Ingibjörg af stað með fríðu föruneyti. Segir ekki af ferðum þeirra, fyrr en þeir komu til borgar þeirrar, er faðir Sigurðar var í. Varð þar sem nærri má geta, hinn mesti fagnaðarfundur, því að allir héldu Sigurð fyrir löngu dauðan. Er nú slegið upp hinni dýrðlegustu veizlu og boðið til múg og margmenni. Hafði Sigurður það til skemmtunar að segja frá ferðum sínum, og þótti öllum hann ærið hafa framazt í þessari ferð og í miklar hættur komið.

Nú hefur Hringur upp mál sitt og biður Ingibjargar systur Sigurðar sér til handa, og var því máli vel svarað. Er nú veizlan aukin að nýju og gjörð að brúðkaupsveizlu. Stóð hún í marga daga með prís og sóma, og að veizlunni endaðri eru höfðingjar með gjöfum út leystir. Býr nú Hringur og Ingibjörg ferð sína, og voru þau með góðu föruneyti og fríðum fjárhlutum út leyst. Mæltu þeir Sigurður og Hringur til ævinlegrar vináttu með sér. Byrjaði þeim vel ferðin. Settist Hringur að ríki sínu og stýrði til ellidaga. Sigurður varð konungur eftir föður sinn og þótti hvarvetna ágætur maður. Unnust þau Ingibjörg vel og lengi.

(Þjóðsögur Jóns Árnasonar)

Netútgáfan - janúar 2000


Text view