Text view
Kola á kolugili
Author | Jón Árnason |
---|---|
Book Title | Íslenzkar þjóðsögur go æfintýri |
Publication Date | 1852 |
Language | Icelandic |
Origin | Iceland |
Kolugil heitir bær einn framarlega í Víðidal fyrir austan Víðidalsá. Þar bjó tröllkona ein sem Kola hét og dró bærinn nafn af henni.
Fyrir neðan bæinn er dimmt og djúpt gil að Víðidalsá og foss einn í gljúfrinu svo hár að enginn lax fer yfir hann og því er engin veiði framar í ánni en í kerinu undir fossinum.
Gilið er ekki afar breitt þó það muni ófært flestum mönnum nú yfir að stökkva, en fyrir vestan Víðidalsá að vestanverðu í gljúfrunum er enn kallað Kolusæng; það er sylla ein í vestra gljúfrinu nokkuð lægri en gilbrúnin og standa upp háir hamrastallar að framanverðu á syllunni til beggja hliða, en lægð er nokkur í milli hamrastallanna. Þeir stallar segja menn að séu bríkurnar á rúminu, en þar sem syllan er lægst um miðjuna seildist Kola ofan úr rúminu á morgna er hún vaknaði, ofan í kerið undir fossinum og tók þar laxa og át á fastandi maga.
Skammt frá Kolusæng er hola mikil í bergið að vestan, það er kallaður Koluketill. Átti hún að hafa soðið í honum laxinn sem hún veiddi í kerinu.
Eggert Ólafsson segir að Tröllkonurúm skuli vera fimmtán álna langt og átta álna breitt og má vel vera að það láti nærri, en þó ætla ég það minnst tiltekið.